Sá þennan hjá
Þórunni og varð að setja hann inn hjá mér
Dag einn hitti ég
yndislegan herramann og við urðum ástfangin. Þegar það varð ljóst
að við myndum giftast ákvað ég að fórna því sem ég hafði mikið
dálæti á. Ég hætti að borða bakaðar baunir.
Einhverjum mánuðum
seinna, á afmælisdaginn minn, og ég var að fara heim frá vinnu,
bilaði bíllinn minn. Þar sem ég bjó út í sveit hringdi ég í manninn
minn og sagði honum að ég kæmi seint þar sem ég þyrfti að ganga
heim.
Á leið minni heim
gekk ég fram hjá litlu veitingahúsi og lyktin af bökuðum baunum var
meiri en ég gat staðist. Þar sem ég átti eftir að ganga nokkra
kílómetra áður en ég næði heim reiknaði ég það út að ég myndi ganga
af mér þá kvilla sem fylgdu því að borða bakaðar baunir áður en ég
kæmi heim. Svo ég stoppaði á veitingahúsinu og áður en ég vissi af
hafði ég klárað þrjá stóra skammta af bökuðum baunum.
Alla leiðina heim
fullvissaði ég mig um að ég hefði losað mig við allt gas sem fylgir
slíkri græðgi. Þegar heim var komið tók eiginmaður minn spenntur á
móti mér og sagði: "Ástin mín! Ég ætla að koma þér á óvart við
kvöldverðarborðið." Hann batt síðan slæðu fyrir augun á mér og
leiddi mig að stól við borðið. Ég fékk mér sæti og rétt í því sem
hann ætlar að leysa frá augunum á mér, hringdi síminn.
Hann lét mig lofa því að
ég myndi ekki kíkja fyrr en hann hefði afgreitt símtalið og svo fór
hann til þess að svara í símann. Bökuðu baunirnar sem ég hafði
innbyrt voru ennþá að hafa áhrif á mig og þrýstingurinn var að
verða óbærilegur. Svo að á meðan eiginmaðurinn var í öðru herbergi
notaði ég tækifærið, lét allan þunga minn hvíla á annarri
rasskinninni og hleypti einu skoti út. Það var ekki eingöngu hátt
heldur lyktaði það eins og gúanóverksmiðja.
Ég tók servíettuna
úr kjöltu mér og notaði hana sem viftu. Svo lyfti ég mér upp á hina
kinnina og skaut þremur í viðbót. Lyktin var verri en af soðnu
káli. Þessu hélt ég áfram í fimm mínútur í viðbót á meðan ég
hlustaði gaumgæfilega á samræðurnar sem fram fóru í hinu
herberginu.
Ánægjan var
ólýsanleg eða þar til kveðjuorðin í hinu herberginu bundu enda á
þetta frelsi mitt. Ég loftaði í flýti í kringum mig með
servíettunni, lagði hana síðan í kjöltu mér og kom höndunum fyrir
ofan á henni og hugsaði um hversu vel mér liði og hversu ánægð ég
var með mig
. Andlit mitt hlýtur að
hafa sýnt mynd sakleysis þegar eiginmaður minn kom aftur og baðst
afsökunnar á því að hafa verið svona lengi í símanum. Hann spurði
mig hvort ég hefði nokkuð svindlað og kíkt en ég fullvissaði hann
um að það hefði ég ekki gert.
Þegar hér var
komið sögu tók hann slæðuna frá augum mér og tólf kvöldverðargestir
sem sátu í kringum borðið hrópuðu: "Til hamingju með
afmælið!" Það leið yfir mig!!!!!!!!!!!!!!!!!!