Halló Halló Halló

19.02.2007 20:55:08 / elvadrofn

Tileinkað Jóhönnu minni(°°,)

Eins og flestir vita sem þekkja mig þá vita þeir að ég er að læra að vera kennari. Einnig vitið þið að umræðan um kennara er ekki sú jákvæðasta í þjóðfélaginu í dag:( Það er svo ótrúlega mikið til af þröngsýnu fólki þarna úti sem er að fullyrða hitt og þetta, um hluti sem það hefur ekki hundsvit á:^)

 

 Þannig að ég ákvað að koma með nokkrar staðreyndir hérna inn á til að útskýra aðeins fyrir ykkur. Kennarar í fullu starfi vinna 1800 klukkustundir á ári alveg eins og aðrir launþegar.  Einnig hefur maður heyrt að kennara fái meira frí en aðrir. En málið er að kennarar vinna 42,86 stundir á viku frá ágústlokum til júníbyrjunar en það er tæpum þremur stundum meira en miðast við fullt starf. Þess vegna fá kennara lengra jóla- og páskaleyfi.  

Svo væla sumir um að kennarar fá svo mikið sumarfrí. Já kennara geta fengið meiri sumarfrí en aðrir en þeir þurfa að skila 102-150 klukkustundum í endurmenntun og mega dreifa þeim á vetrarmánuðina svo að þeir séu í fríi yfir sumarið.  

Svo er svo margt fleira sem fólkið er að segja sem ég nenni ekki einu sinni að tjá mig um, er nógu pirruð fyrir af öðrum ástæðum:evil::evil: Vildi bara aðeins tjá mig um þetta þar sem ég er að fara vinna í þessari stétt.  

Elva kennari:haha:


» 12 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 23:29:22 / elvadrofn

Titill titill

Komin tími á smá update frá mér:o Skellti mér í óvissuferð með vinnunni á föstudaginn. Byrjuðum ferðina í Miðhrauni í Garðabæ og þaðan lá leiðin á Víkingasetrið á Básum. Þar fengum við fínan mat og að sjálfsögðu voru nokkrir bjórar og nokkur rauðvínsglös drukkin;) Eftir það fórum við á draugasetrið á Stokkseyri, verð nú að segja að fyrir mig sem er gríðalega myrkfælin og hrædd við allt þá er þetta ekki eitthvað til að vera smeykur við. En við vorum þar í dágóðan tíma og tjúttuðum þar og höfðum gaman af. Sumir meira en aðrir:D Það komu ýmsir leyndir hæfileikar í ljós hjá samstarfsfólki mínu hehe:haha:8)

 

Vaknaði snemma á laugardaginn og brunaði norður með Heiðu til að komast  á þrorrablótið. Það var náttúrlea alveg snilld eins og alltaf áður. Hárið á mér vakti alveg mikla athygli eins og svo oft áður. Veit ekki hvað sumt fólk er farið að halda um mig8| en mér finnst þetta bara gaman;) Svo fórum við suður á sunnudeginum ég, Heiða, Hrefna og Ástrós. Var svo engan vegin að nenna að keyra þetta enda búin að vera á djamminu síðan á föstudaginn, en hvað gerir maður ekki fyrir gott djamm. Er meira segja farin að spá strax í næsta djamm. Heiða ef þú ert að lesa þetta þá er ég í fríí á laugardaginn og get djammað á föstudaginn:haha:

 

» 6 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 00:24:42 / elvadrofn

Góður brandari

Sá þennan hjá Þórunni og varð að setja hann inn hjá mér:lol:

Dag einn hitti ég yndislegan herramann og við urðum ástfangin. Þegar það varð ljóst að við myndum giftast ákvað ég að fórna því sem ég hafði mikið dálæti á. Ég hætti að borða bakaðar baunir.

Einhverjum mánuðum seinna, á afmælisdaginn minn, og ég var að fara heim frá vinnu, bilaði bíllinn minn. Þar sem ég bjó út í sveit hringdi ég í manninn minn og sagði honum að ég kæmi seint þar sem ég þyrfti að ganga heim.

 Á leið minni heim gekk ég fram hjá litlu veitingahúsi og lyktin af bökuðum baunum var meiri en ég gat staðist. Þar sem ég átti eftir að ganga nokkra kílómetra áður en ég næði heim reiknaði ég það út að ég myndi ganga af mér þá kvilla sem fylgdu því að borða bakaðar baunir áður en ég kæmi heim. Svo ég stoppaði á veitingahúsinu og áður en ég vissi af hafði ég klárað þrjá stóra skammta af bökuðum baunum.

 Alla leiðina heim fullvissaði ég mig um að ég hefði losað mig við allt gas sem fylgir slíkri græðgi. Þegar heim var komið tók eiginmaður minn spenntur á móti mér og sagði: "Ástin mín! Ég ætla að koma þér á óvart við kvöldverðarborðið." Hann batt síðan slæðu fyrir augun á mér og leiddi mig að stól við borðið. Ég fékk mér sæti og rétt í því sem hann ætlar að leysa frá augunum á mér, hringdi síminn.

Hann lét mig lofa því að ég myndi ekki kíkja fyrr en hann hefði afgreitt símtalið og svo fór hann til þess að svara í símann. Bökuðu baunirnar sem ég hafði innbyrt voru ennþá að hafa áhrif á mig og þrýstingurinn var að verða óbærilegur. Svo að á meðan eiginmaðurinn var í öðru herbergi notaði ég tækifærið, lét allan þunga minn hvíla á annarri rasskinninni og hleypti einu skoti út. Það var ekki eingöngu hátt heldur lyktaði það eins og gúanóverksmiðja.

 Ég tók servíettuna úr kjöltu mér og notaði hana sem viftu. Svo lyfti ég mér upp á hina kinnina og skaut þremur í viðbót. Lyktin var verri en af soðnu káli. Þessu hélt ég áfram í fimm mínútur í viðbót á meðan ég hlustaði gaumgæfilega á samræðurnar sem fram fóru í hinu herberginu.

 Ánægjan var ólýsanleg eða þar til kveðjuorðin í hinu herberginu bundu enda á þetta frelsi mitt. Ég loftaði í flýti í kringum mig með servíettunni, lagði hana síðan í kjöltu mér og kom höndunum fyrir ofan á henni og hugsaði um hversu vel mér liði og hversu ánægð ég var með mig

. Andlit mitt hlýtur að hafa sýnt mynd sakleysis þegar eiginmaður minn kom aftur og baðst afsökunnar á því að hafa verið svona lengi í símanum. Hann spurði mig hvort ég hefði nokkuð svindlað og kíkt en ég fullvissaði hann um að það hefði ég ekki gert.

 Þegar hér var komið sögu tók hann slæðuna frá augum mér og tólf kvöldverðargestir sem sátu í kringum borðið hrópuðu: "Til hamingju með afmælið!" Það leið yfir mig!!!!!!!!!!!!!!!!!!


» 6 hafa sagt sína skoðun


Textabox